Í nútímasamfélagi er gerð meiri krafa um orkusparnað og að fyrirtæki axli samfélagslega ábyrgð t.d. með því að minnka kolefnisspor. Svansvottaðar byggingar hafa verið að aukast hér á landi og ennþá meira á hinum Norðurlöndunum.
Svanurinn er norrænt vottunarkerfi sem leggur áherslu á að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum bygginga og bæta auðlindanýtingu. Svansvottun bygginga gerir ríkar kröfur til orkunýtingar ásamt notkun öruggra og umhverfisvænna efna. Markmiðið er að auka gæði, draga úr rekstrarkostnaði og byggja heilnæmar og öruggar byggingar.
Til að bygging geti fengið Svansvottun, eða aðra umhverfisvottun, er einnig gerð krafa um dagsljósaútreikninga. Það tryggir betri nýtingu á dagsljósi í íverurými og þar af leiðandi meiri orkusparnað. Náttúrulegt ljós gefur einnig upplýsingar um tíma dags og árstíð. Auk þess hefur það áhrif á vellíðan, einbeitingu, afköst, skap, líkamsklukku, heilsu o.s.frv.
Frumafl býður uppá dagsljósaútreikningar eftir kröfum Svansins.